Luka Ceranja er nýjasta viðbótin í keppnislið Mjölnis. Luka er af króatísku bergi brotinn og hefur verið að gera mjög góða hluti hjá Mjölni að sögn æfingarfélaga hans. Luka er einn þriggja manna sem berst á atvinnumannastigi á Íslandi og verður þetta hans annar atvinnumannabardagi.
Luka berst í kvöld á FNC: Sarajevo (Fight Nation Championship) bardagakvöldinu í höfuðborg Bosníu og hersegóvinu. Luka mætir heimamanninum Teufik “Hanibal” Sehic sem berst einnig sinn annan atvinnumannabardaga eftir að hafa sigrað frumraun sína gegn Abraham Salomon Are í fyrstu lotu.
Hægt er að kaupa aðgang að streyminu fyrir 5.31 evru Hér : https://www.fnc.tv/
Bardagakvöldið byrjar kl 19:00 a Íslenskum tima.