Fyrrum bardagamaðurinn Matt Hughes er á batavegi eftir áreksturinn sem hann varð fyrir í júní. Lest keyrði í hlið bifreiðar hans og er hann nú ekki lengur í dái.
Þann 16. júní ók Matt Hughes í veg fyrir lest nálægt heimili sínu í sveitinni. Hughes var kyrrstæður á malarvegi nálægt lestarteinunum, sá lestina koma og reyndi að komast yfir teinana á undan lestinni en lestin var á 80 km hraða. Þetta var á malarvegi í sveitinni og eru þar engin skilti sem gefa til kynna að þarna séu lestarteinar.
Hughes hlaut alvarlega höfuðáverka í slysinu og var fluttur með þyrlu á spítalann. Pat Miletich er fyrrum þjálfari hans og náinn vinur. Hann var í The MMA Hour í gær og sagði að Hughes væri á batavegi og er hann ekki lengur í dái.
„Hann kemur læknunum á óvart. Hann er að taka miklum framförum og er ekki lengur í dái. Það er langur vegur framundan. Hann mun þurfa að fara í mikla endurhæfingu eftir svona höfuðáverka,“ sagði Miletich.