Thursday, October 3, 2024
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeErlentMerab Dvalishvili ætlar að styrkja MMA starfsemi í Georgíu, fagnað með skrúðgöngu...

Merab Dvalishvili ætlar að styrkja MMA starfsemi í Georgíu, fagnað með skrúðgöngu í heimalandinu (myndband)

Hinn Georgíski Merab Dvalishvili varð nýlega UFC bantamvigtarmeistari þegar hann sigraði Sean O´Malley á UFC 306. Georgíska ríkisstjórnin hefur gefið Merab 1 milljón Georgíska Lari (tæpar 50 milljónir isk) og hyggst hann nota peninginn til að styrkja MMA og aðra bardagaíþróttastarfsemi í landinu til þess að framleiða fleiri UFC meistara.

Þegar Merab sneri heim til Georgíu með beltið var honum fagnað með skrúðgöngu. Merab hefur sent þakkir til þjóðar sinnar í gegnum X fyrir hlýlegar móttökur, segist þakklátur fyrir allt og að Georgía og Georgíska þjóðin eigi stað í hjarta hans.

Merab er núna á 11 bardaga sigurgöngu í UFC eftir að hafa tapað fyrstu tveimur og líklegt er að hann mæti hinum ósigraða Umar Nurmagomedov fyrir sína fyrstu titilvörn. Sean O´Malley er á leiðinni í aðgerð á mjöðm, gæti verið frá í heilt ár og neyðist til að fylgjast með á hliðarlínunni. Petr Yan og Deiveson Figureido munu mætast í nóvember í spennandi toppbáráttu stöðubardaga og því spennandi hreyfingar í gangi í Bantamvigtinni.

spot_img
spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -spot_img

Most Popular