Friday, April 19, 2024
HomeErlentMichael Johnson, Eddie Alvarez og Hayder Hassan bjóðast til þess að mæta...

Michael Johnson, Eddie Alvarez og Hayder Hassan bjóðast til þess að mæta Ferguson

UFC gerir nú tilraun til þess að finna staðgengil fyrir Khabib Nurmagomedov sem getur ekki mætt Tony Ferguson annað kvöld. Nokkrir bardagamenn hafa boðist til þess að koma inn en vonin er ekki mikil.

Khabib Nurmagomedov var fluttur upp á spítala seint í gærkvöldi og hefur bardaginn verið blásinn af samkvæmt læknisráði.

Nokkrir bardagamenn hafa boðist til þess að koma inn með örskömmum fyrirvara. Michael Johnson er staddur í Las Vegas og hefur boðist til þess að berjast við Tony Ferguson. UFC bíður eftir samþykki Ferguson og vonast svo til þess að geta fengið bardagann samþykktan af íþróttasambandi Nevada fylkis.

Þá var Nate Diaz sagður koma til greina en hann þótti of þungur.

Eddie Alvarez kom nafninu sínu í umræðuna en hann er ekki einu sinni staddur í Las Vegas.

Veltivigtarmaðurinn Hayder Hassan er til í bardagann en hann er staddur í Las Vegast um þessar mundir.

UFC ætlar þó að reyna að koma Johnson í bardagann en óvíst hvort það takist með svo skömmum fyrirvara.

Eina tap Tony Ferguson í UFC kom einmitt gegn Michael Johnson árið 2012.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular