Bardagaklúbburinn Mjölnir fær nýtt glæsilegt búr. Búrið er stærra en gamla búrið og líkist UFC búrinu að miklu leiti.
Nýja búrið er 30 fet (9 metrar) að þvermáli en búrið sem UFC notast við er 32 fet. Búrið sem er núna í Mjölni er 20 fet og verður þetta því frábær viðbót við glæsilega æfingaaðstöðu þeirra. Þetta búr gerir Gunnari Nelson og Keppnisliði Mjölnis kleift að æfa í stærra búri en áður en fáir bardagaklúbbar í Evrópu eiga svo stórt búr til að æfa í. Búrið kemur frá Monster Cage í Bandaríkjunum og kemur hingað til lands á næstu vikum. Til að koma búrinu fyrir hyggst Mjölnir rífa niður stúkuna í glímusalnum á efri hæð hússins.