Mjölnir mun flytja í Öskjuhlíðina þar sem Keiluhöllin var áður til húsa. Þetta var tilkynnt á sérstakri afmælishátíð Mjölnis rétt í þessu.
Mjölnir hefur verið í gamla Loftkastalanum í fjögur ár en flutningar í Öskjuhlíðina munu eiga sér stað á næsta ári. Húsnæðið verður risastórt, sex salir auk glæsilegs útisvæðis.
Framtíðarstarf Mjölnis var kynnt á afmælishátíðinni en Mjölnir fagnar tíu ára afmæli þessa helgina.
Nánari fréttir af flutningunum kemur síðar.