Það styttist í UFC bardagakvöldið í Kaupmannahöfn. Þetta verður fyrsta heimsókn UFC til Danmerkur og hefur plakatið fyrir bardagakvöldið verið birt.
Plakatið fyrir bardagakvöldið var birt á Twitter fyrr í dag. Gunnar Nelson mætir Thiago Alves á bardagakvöldinu en í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Jack Hermansson og Jared Cannonier.
Bardagi Gunnars gegn Thiago Alves verður næstsíðasti bardagi kvöldsins.
Bardagakvöldið fer fram þann 28. september í Royal Arena. Bardagarnir halda áfram að raðast á bardagakvöldið en fyrr í dag var bardagi Marc Diakiese og Lando Vannata staðfestur á bardagakvöldið.