Heimsmeistaramót áhugamanna í MMA fer fram um þessar mundir í Barein. Þar eru sex íslenskir keppendur skráðir til leiks og eru tveir keppnisdagar búnir.
Mjölnir er með fimm manna lið á mótinu og hefur félagið birt myndband sem sýnir aðeins á bakvið tjöldin í ferðinni. Þar má sjá frá fyrstu tveimur keppnisdögunum og m.a. sjá bardaga Björns Þorleifs í gær. Björn sigraði Þjóðverjann Waldemar Holodonko og keppir í 8-manna úrslitum í dag gegn sterkum Ítala.
Einnig má sjá ferðalagið hjá hópnum hér að neðan.