UFC lýsandinn og fyrrum bardagamaðurinn Brian Stann neyddist til að vaxa á sér lappirnar á dögunum. Þetta þurfti hann að gera eftir að hafa tapað veðmáli við Jon Anik.
Þeir Jon Anik og Brian Stann lýstu UFC bardagakvöldinu á laugardaginn í Kansas. Þeir nýttu ferðina vel og innheimti Anik gamalt veðmál sem hann vann.
Þeir Anik og Stann veðjuðu sín á milli um úrslit Super Bowl leiksins á milli New England Patriots og Atlanta Falcons fyrr á árinu. Patriots unnu leikinn og vann Anik því veðmálið.
Stann neyddist því til að vaxa á sér lappirnar og gerðu þeir Anik og Stann sér ferð á snyrtistofu í Kansas þar sem málið var klárað.
https://www.youtube.com/watch?v=QhW6NpkllCo