Conor McGregor mætir Nate Diaz á UFC 196 á laugardaginn. McGregor er um þessar mundir í Bandaríkjunum og kom einum ofuraðdáenda sínum á óvart með því að mæta heim til hans.
McGregor var á leið á æfingu þegar hann sá pappaspjald af sjálfum sér á svölunum í íbúðarblokk. McGregor bankaði upp og heilsaði aðdáendanum sem var vægast sagt ánægður með heimsóknina.