Í dag hófst bardagavikan fyrir boxbardaga Floyd Mayweather og Conor McGregor formlega. Báðir bardagamenn fengu sérstaka móttöku í Las Vegas og gekk ekki allt þrautalaust fyrir sig.
Nokkuð var um skipulagsleysi á viðburðinum og var nokkur óánægja með viðburðinn meðal aðdáenda og fjölmiðla í steikjandi hitanum í Las Vegas. Bardagamenn heilsuðu upp á aðdáendur áður en þeir gengu inn í fjölmiðlatjaldið.
Á leið sinni í tjaldið áttu þeir Conor og Paulie Malignaggi í smá orðaskiptum.
Conor & Paulie get into it. @PaulMalignaggi tells @TheNotoriousMMA “don’t forget to bring your balls” #mayweathervsmcgregor @espnlasvegas pic.twitter.com/NjBRRxkqYI
— Helen Yee (@HelenYeeSports) August 22, 2017
Malignaggi var mjög ósáttur þegar myndir af honum að sparra við Conor McGregor fóru á netið og yfirgaf hann æfingabúðirnar í fússi.