Dana White, forseti UFC, tók þátt í skemmtilegri getraun GQ tímaritsins. Dana reyndi þá að giska á húðflúr bardagamanna sem barist hafa í UFC.
Margir bardagamenn hafa ansi skrautleg húðflúr. Dana White er sjálfur ekki mikið fyrir húðflúr og var ekki mjög hrifinn af þeim húðflúrum sem hann átti að giska á. Hann var í þó nokkrum erfiðleikum með að giska á húðflúrin eins og sjá má hér að neðan.