Michael Bisping fékk að kenna á því í þættinum UFC Tonight á miðvikudaginn. Í miðri útsendingu hljóp maður í fuglahræðubúning í settið til að bregða Bisping og tókst ætlunarverkið ansi vel.
Michael Bisping er einn af stjórnendum þáttarins UFC Tonight. Í innslagi með Kenny Florian fékk Bisping að kenna á því og brá honum allverulega. Sjón er sögu ríkari.
Happy Halloween @bisping! ? pic.twitter.com/MIhifYUDb4
— FOX Sports: UFC (@UFCONFOX) November 1, 2018
Þetta er ekki eini hrekkurinn sem UFC gerði í vikunni. Nokkrir bardagamennirnir fengu að kenna á því með klassískum hrekk.
Over the last two weeks, we challenged fighters to a maze…
They didn’t know how it ended ? #HappyHalloween #Halloween2018 pic.twitter.com/lv8dbepRBV
— UFC (@ufc) October 31, 2018