Úrslitakvöld 23. seríu The Ultimate Fighter fór fram á föstudaginn. Khalil Rountree barðist á föstudaginn og var ekki ánægður með hrópin í mömmu sinni.
https://www.youtube.com/watch?v=dOMSVvUL_n4
Khalil Rountree tapaði fyrir Andrew Sanchez eftir dómaraákvörðun í einhliða bardaga. Í 2. lotu var hann orðinn pirraður á hvetjandi hrópum móður sinnar og bað hana vinsamlegast um að hætta.
Þetta var úrslitabardaginn í léttþungavigtinni í seríunni og gekk lítið upp hjá Rountree í bardaganum. Hann er þó kominn með samning við UFC og verður áhugavert að sjá hvort mamma hans muni halda áfram að hvetja hann í næsta bardaga.