Khabib Nurmagomedov átti frábæra frammistöðu gegn Michael Johnson á UFC 205 um helgina. Eins og við greindum frá fyrr í vikunni var Khabib að tala við Michael Johnson og Dana White í miðjum bardaga.
UFC sendi frá sér nýverið myndband sem sýnir Khabib að tala við Johnson. Khabib sagði Johnson m.a. að gefast bara upp og að hann þyrfti að berjast um titilinn.
Þá er áhugavert að heyra Mieshu Tate viðurkenna að hún hafi þetta ekki lengur í sér. Tate hætti óvænt strax eftir bardagann en hún hefur verið lengi í sportinu.