Bellator 147 fór fram í gær í San Jose í Kaliforníu. Josh Thomson sigraði hinn óþekkta Pablo Villaseca í aðalbardaga kvöldsins en slæmur skurður á Mario Soto vakti mesta athygli.
Adam Piccolotti er enn ósigraður í sjö bardögum eftir sigur á Mario Soto í gær. Í 2. lotu opnaðist slæmur skurður á Soto og er Piccolotti læsti hengingunni og kreysti spýttist blóðið úr skurðinum líkt og í hryllingsmynd. Sjón er sögu ríkari en hér má sjá myndbönd af atvikinu.
Við bendum á að atvikið er ekki fyrir viðkvæma.
Tweet
Slomo sound makes it way scarier. RT @ekc: Squirt. https://t.co/tGlCz0U4pn
— esther lin (@allelbows) December 5, 2015