Snúningshringspörk hitta ekki alltaf þar sem þau eiga að hitta. Í þessum bardaga í Kína fór sparkið beint í klofið og lá andstæðingurinn óvígur eftir.
Xian Ji mætti Shunichi Shimizu á Bullet FC bardagakvöldinu þann 1. janúar. Í 2. lotu fór Ji í þetta glæsilega hringspark en því miður hitti Ji beint í klofið. Shimizu lá óvígur eftir sparkið en dómarinn taldi að sparkið hefði einfaldlega hitt í magann. Á hreyfimyndinni hér að neðan sést hvernig sparkið hittir beint í klofið.
Þessi bardagi ætti sennilega að vera úrskurðaður ógildur þar sem það er auðvitað bannað að sparka í klof andstæðingsins. Ji vonast þó eflaust að niðurstaðan verði óbreytt þar sem þetta er eina rothögg hans á ferlinum.