Nick Diaz var fyrr í sumar sakaður um heimilisofbeldi. Nú hefur málið verið fellt niður og er hann laus allra mála.
Fyrrum kærasta Nick Diaz sakaði hann um að hafa gengið í skrokk á sér. Diaz og umrædd kærasta voru sundur og saman í dágóðan tíma en Diaz var handtekinn í maí sakaður um að hafa kyrkt fórnarlambið og sakaður um fyrstu gráðu heimilisofbeldi.
Nú ætlar saksóknarinn í Nevada fylki ekki að halda áfram með málið og hefur kæran verið felld niður. Læknaskýrslur þóttu ekki vera í samræmi við ásakanir fórnarlambsins á hendur Diaz.
Diaz sendi frá sér tilkynningu á samfélagsmiðlum þar sem hann þakkaði fyrir stuðninginn og hlakki til að snúa aftur. Diaz hefur ekki barist síðan hann tapaði fyrir Anderson Silva í janúar 2015. Sigur Anderson var síðar dæmdur ógildur eftir að hann féll á lyfjaprófi.
— nick diaz (@nickdiaz209) August 30, 2018