spot_img
Sunday, December 22, 2024
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeForsíðaNýtt fyrirkomulag The Ultimate Fighter

Nýtt fyrirkomulag The Ultimate Fighter

att vs blackziliansUFC kynnti um helgina nýtt fyrirkomulag af raunveruleikaþættinum The Ultimate Fighter. 21. sería mun hefjast þann 22. apríl en að þessu sinni verða ekki tveir þjálfarar að keppa gegn hvor öðrum heldur munu Flórída-liðin American Top Team og Blackzilians keppa gegn hvort öðru.

Þetta mun því brjóta upp tíu ára hefðina þar sem tveir þekktir bardagakappar taka að sér hlutverk þjálfara og berjast svo í lok seríunnar. Þess í stað verða forsprakkar félaganna þeir Dan Lambert, American Top Team (ATT), og Glenn Robinson, Blackzillians, í sviðsljósinu. Þessir tveir hafa verið að þræta í mörg ár og má því búast við drama frá þeim. Keppnin mun verða milli átta bestu veltivigtarkappa félaganna.

Þátttakendurnir 16 munu búa saman í húsi í Flórída en ólíkt fyrri seríum munu keppendur ekki deila æfingarhúsnæði og æfa þess í stað í eigin félagi. Bardagarnir fara fram í húsnæði ATT eða Blackzilians þar sem sigurliðið heldur heimavelli.

Það er ekkert leyndarmál að mikill rígur hefur verið á milli þessara félaga í gegnum árin. Blackzillians var stofnað af fjórum fyrrum meðlimum American Top Team sem yfirgáfu félagið til að stofna Blackzilians í aðeins tuttugu mínútna fjarlægð frá ATT.

Bæði félögin eru stútfull af hæfileikaríkum þjálfurum og bardagaköppum.

Liborio_pic
Ricardo Liborio.

Ricardo Liborio er yfirþjálfari og einn af stofnendum American Top Team. Hann hefur unnið til stórra afreka í brasilísku jiu-jitsu og sigraði til að mynda „Mundials“ (eitt af heimsmeistaramótunum í BJJ) árið 1996. Hjá ATT þjálfar hann suma af bestu bardagamönnum heims á borð við veltivigtarmeistarann Robbie Lawler, Hector Lombard, Thiago Alves, Yoel Romero og fleiri. Það má því búast við að sjá þessa kappa veita hjálparhönd í þjálfun keppendanna. Aðrir þjálfarar eru Mike Brown (fyrrum WEC fjaðurvigtarmeistari) og Conan Silveira.

Blackzillians eru ekkert slakari og meðal þekktra bardagamanna sem æfa þar eru Anthony Johnson, Vitor Belfort, Michael Johnson og Rashad Evans. Þjálfararnir þar eru ekki af lakari kantinum en þar á meðal er Henri Hooft (einn besti sparkbox þjálfari heims um þessar mundir), Jorge Santiago (BJJ þjálfari en hann er margreyndur MMA kappi og verið svart belti í yfir 10 ár) og Greg Jones (glímuþjálfari en hann er einn besti glímumaðurinn í sögu háskólaglímunnar).

Undanfarin ár hefur áhorf á TUF farið minnkandi og hefur UFC reynt að krydda upp í formúlunni til að auka áhorf. Þetta verður því kærkomin nýjung í seríuna og verður gaman að sjá hvernig þessi tilraun þeirra tekst.

spot_img
spot_img
spot_img
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

1 COMMENT

  1. Mér finnst þetta áhugaverð og spennandi breyting. Ekki veitir af, því gamla formúlan er orðin svolítið þreytt. Það er ekki spurning að maður kíkir á þetta þegar serían byrjar og ég vona að þetta verði skemmtilegt. Ég hef amk ekki heyrt Dana White tala jafn vel um þáttaröð af TUF síðan í TUF 17 og það var mjög fín sería, sú síðasta sem var eitthvað var í, held ég.

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Most Popular