Þeir Robert Whittaker og Paulo Costa mætast í apríl. Bardaginn verður aðalbardaginn á UFC bardagakvöldi 17. apríl.
Robert Whittaker hefur verið á góðu skriði síðan hann tapaði millivigtarbeltinu sínu. Whittaker vann Jared Cannonier í október en þar áður vann hann Darren Till. Whittaker tapaði beltinu til Israel Adesanya og þarf greinilega að gera meira til að fá annan titilbardaga.
Paulo Costa tapaði illa fyrir Adesanya í september í fyrra. Þetta verður hans fyrsti bardagi eftir tapið en Costa hefur þegar beðið um annað tækifæri gegn Adesanya.
Bardaginn verður aðalbardaginn þann 17. apríl en ekki er vitað hvar bardagakvöldið verður.
UFC officials confirm, Robert Whittaker (@robwhittakermma) vs. Paulo Costa (@BorrachinhaMMA) will headline an event on April 17. Five rounds. How good is this? pic.twitter.com/mexXsiqWuF
— Brett Okamoto (@bokamotoESPN) January 26, 2021