UFC var að bæta við einum bardaga á bardagakvöldið í Belfast í nóvember. Gunnar Nelson er auðvitað í aðalbardaganum en fyrr um kvöldið mætast þeir Ross Pearson og James Krause.
Bardagi Pearson og Krause fer fram í léttvigt og má búast við að hann verði ofarlega á bardagakvöldinu. Kapparnir áttu að mætast í júlí í sumar en Krause neyddist til að draga sig úr bardaganum vegna meiðsla. Will Brooks kom í hans stað og mátti Pearson sætta sig við tap.
Pearson hefur verið duglegur í ár en þetta verður fimmti bardaginn hans á þessu ári. Pearson barðist tvisvar í júlí en Pearson tapaði síðast fyrir Jorge Masvidal á UFC 201.
James Krause hefur unnið tvo bardaga í röð en síðast vann hann Shane Campbell í febrúar á þessu ári. Krause er með fjóra sigra og þrjú töp í UFC en hann æfir hjá Glory MMA ásamt Zak Cummings.
Bardagakvöldið er hægt og rólega að taka á sig mynd en nú hafa fjórir bardagar verið staðfestir á kvöldið.
Veltivigt: Gunnar Nelson gegn Dong Hyun Kim
Fluguvigt: Neil Seery gegn Ian McCall
Léttvigt: Ross Pearson gegn James Krause
Strávigt kvenna: Amanda Cooper gegn Anna Elmose
Seinni forsalan fyrir bardagakvöldið hófst í dag fyrir áskrifendur af fréttabréfi UFC. Hægt er að nálgast miða hér en kóðinn er UFCBELFAST.