Fyrsta titilvörn þungavigtarmeistarans Stipe Miocic verður gegn Alistair Overeem á UFC 203. Bardagakvöldið fer fram í heimaborg Miocic, Cleveland, þann 10. september.
Þetta verður fyrsta heimsókn UFC til Cleveland og er Miocic hæst ánægður með að fá loksins að berjast á sínum heimavelli. Miocic tók þungavigtartitilinn af Fabricio Werdum á dögunum og rotaði hann eftir aðeins hálfa lotu.
Sjá einnig: Nýr meistari – Stipe Miocic
Alistair Overeem hefur sigrað fjóra bardaga í röð en síðast sáum við hann rota Andrei Arlovski á UFC bardagakvöldinu í Rotterdam. Overeem var þá á heimavelli í Hollandi en í þetta sinn verður andstæðingur hans á sínum heimavelli.
Bardaginn verður aðalbardagi kvöldsins á UFC 203 þann 10. september.