Bardagakvöldið í Dublin er hægt og bítandi að taka á sig mynd. Í gærkvöldi var það staðfest að Stipe Miocic og Ben Rothwell munu mætast á bardagakvöldinu. Nú eru átta staðfestir bardagar á kvöldinu.
Viðureign Miocic og Rothwell er mikilvægur bardagi í þungavigtinni. Báðum hefur vegnað vel upp á síðkastið en talið var líklegt að Miocic fengi næsta titilbardaga. Miocic sigraði Mark Hunt í maí á þessu ári en tapaði þar áður fyrir Junior dos Santos í jöfnum bardaga.
Ben Rothwell hefur sigrað þrjá bardaga í röð og vakti mikla athygli fyrir sigur sinn gegn Matt Mitrione. Frammistaðan var góð en viðtalið eftir sigurinn var mun minnistæðara.
Bardaginn verður á aðalhluta bardagakvöldsins og er líklegur sem næstsíðasti bardagi kvöldsins (e. co-main event). Bardagakvöldið í Dublin lítur því svona út sem stendur en reikna má með að UFC bæti fjórum bardögum við.
Léttvigt: Dustin Poirier gegn Joseph Duffy
Þungavigt: Stipe Miocic gegn Ben Rothwell
Fluguvigt: Paddy Holohan gegn Louis Smolka
Léttvigt: Norman Parke gegn Reza Madadi
Millivigt: Cathal Pendred gegn Tom Breese
Millivigt: Scott Askham gegn Krzysztof Jotko
Millivigt: Bubba Bush gegn Garreth McLellan
Veltivigt: Darren Till gegn Nicolas Dalby