Annað kvöld berst hin mexíkanska Alexa Grasso sinn annan bardaga í UFC. Árið 2014 gerði Fightland áhugaverða heimildarmynd um hana og Irene Aldana.
Þær Grasso og Aldana koma báða frá Mexíkó, báðar búnar með einn bardaga í UFC og komu báðar úr Invicta. Grasso sáum við sigra í desember sinn fyrsta UFC bardaga en Aldana mátti sætta sig við tap.
Grasso mætir Felice Herrig annað kvöld á UFC Fight Night: Bermudez vs. Korean Zombie. Bardaginn er næstsíðasti bardagi kvöldsins og vonast UFC eflaust eftir því að þarna sé framtíðarstjarna í kvennaflokkunum.