UFC 249 er dautt en UFC ætlar að snúa aftur þann 9. maí þó enn sé óljóst hvort íþróttaheimurinn verði farinn aftur af stað þá. Í nýjasta Tappvarpinu var farið yfir síðustu vikur í MMA heiminum.
UFC hefur þurft að hætta við sex bardagakvöld en ætlar aftur af stað þann 9. maí með bardaga Justin Gaethje og Tony Ferguson.
UFC reyndi eins og það gat að halda UFC 249 en þurfti á endanum að gefast upp að beiðni ESPN og Disney.