UFC 249 fer loksins fram um helgina í Jacksonville, Flórída. Hitað var vel upp fyrir bardagakvöldið í Tappvarpinu.
UFC 249 verður fyrsta bardagakvöldið af mörgum í maí hjá UFC. Þeir Tony Ferguson og Justin Gaethje mætast í aðalbardaga kvöldsins. Dominick Cruz snýr aftur eftir þriggja ára fjarveru og reynir að endurheimta bantamvigtartitilinn úr klóm Henry Cejudo.
Bardagamaðurinn Bjarki Ómarsson mætti í þáttinn og fór vel yfir bardagakvöldið.