Thursday, March 28, 2024
HomePodcastTappvarpið 95. þáttur: UFC 250 uppgjör og ókyrrð stjarnanna

Tappvarpið 95. þáttur: UFC 250 uppgjör og ókyrrð stjarnanna

95. þáttur Tappvarpsins er kominn út. Í þættinum fórum við yfir UFC 250 um síðustu helgi og nýjustu fréttir vikunnar.

Amanda Nunes rústaði Felicia Spencer um síðustu helgi. Spencer átti ekki séns í bardaganum og var þetta öruggur sigur hjá Nunes.

Jorge Masvidal og Jon Jones hafa verið í opinberum deilum við UFC um samninginn sinn. Nokkur ókyrrð hefur verið hjá þessum stærstu stjörnum UFC en Conor McGregor ákvað einnig að hætta (í þriðja sinn). Nokkrir titilbardagar hafa verið staðfestir og fórum við yfir þá einnig.

Bjarki Ómarsson er orðinn nýr aðstoðarstjórnandi þáttarins og mun hann gefa góða innsýn í bardagaheiminn enda atvinnubardagamaður sjálfur.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular