Friday, April 26, 2024
HomeForsíðaTómas Pálsson gráðaður í svart belti

Tómas Pálsson gráðaður í svart belti

Tómas Pálsson var um helgina gráðaður í svart belti í brasilísku jiu-jitsu. Tómas er 24. Íslendingurinn til að fá svart belti í BJJ.

Gráðunin fór fram hjá Atlantic BJJ á Akureyri um helgina. Tómas var gráðaður af Gunnari Nelson sem hélt æfingu hjá Atlantic um helgina. Tómas er yfirþjálfari og einn af stofnendum Atlantic BJJ á Akureyri og hefur haldið glímustarfinu gangandi fyrir Norðan eftir að Fenrir lokaði.

Með gráðuninni hafa 24 Íslendingar fengið svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu. Aðrir sem hafa hlotið þann heiður að fá svart belti í brasilísku jiu-jitsu eru í eftirfarandi röð: Haraldur Þorsteinsson, Gunnar Nelson, Arnar Freyr Vigfússon, Kári Gunnarsson, Ingþór Örn Valdimarsson, Axel Kristinsson, Bjarni Baldursson, Sighvatur Magnús Helgason, Þráinn Kolbeinsson, Jóhann Eyvindsson, Daði Steinn Brynjarsson, Ómar Yamak, Halldór Logi Valsson, Birkir Freyr Helgason, Jósep Valur Guðlaugsson, Aron Daði Bjarnason, Halldór Sveinsson, Kristján Helgi Hafliðason, Bjarki Þór Pálsson, Inga Birna Ársælsdóttir, Magnús Ingi Ingvarsson, Atli Örn Guðmundsson, Árni Ísaksson og Tómas Pálsson.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular