Veltivigtarmeistarinn Tyron Woodley segist vera kominn með andstæðing fyrir sína næstu titilvörn. Fáir koma til greina miðað við stöðuna í veltivigtinni og velta margir fyrir sér hvort Nick Diaz sé andstæðingurinn.
Tyron Woodley varði titilinn sinn með sigri á Stephen Thompson á UFC 209. Hann lét nýlega hafa eftir sér að hann vilji berjast næst á UFC 213 í júlí og virðist sem svo að sú ósk verði að veruleika. Hann sagði einnig að æfingabúðirnar sínar væru þegar byrjaðar fyrir sína næstu titilvörn.
Í gær sagði hann svo að hann væri með bardaga í júlí en gat ekki sagt hver andstæðingurinn hans væri.
Life is busy when you’re the CHAMP!
Our man @TWooodley checked in to let us know what he’s been up to. Catch him tonight on @FS1! pic.twitter.com/FlbFJopEYW
— FOX Sports: PROcast (@PROcast) April 26, 2017
Flestir í veltivigtinni eru með bardaga núna og Demian Maia (sem á að flestra mati skilið að fá næsta titilbardaga) á að mæta Jorge Masvidal í maí. Það er því enginn augljós kostur og velta því margir fyrir sér hvort andstæðingurinn sé Nick Diaz.
Tyron Woodley hefur margoft sagt að hann vilji mæta Diaz. Samkvæmt fjölmiðlamanninum Luke Thomas var Diaz boðinn bardagi á dögunum og er bardaginn sagður vera fáranlegur af ástæðum sem eru ókunnar. Titilbardagi fyrir Nick Diaz væri svo sannarlega fáranlegur bardagi enda hefur hann lítið barist undanfarin ár og ekki unnið bardaga síðan 2011.