Það gekk ýmislegt á á blaðamannafundinum í gær fyrir UFC 202. Conor McGregor mætti alltof seint á blaðamannafundinn og fór allt í háaloft þegar hann loksins mætti.
Í 4. þættinum í Embedded seríunni má sjá aðeins á bakvið tjöldin á blaðamannafundinum. Conor horfði á blaðamannafundinn í bílnum á leiðinni og taldi að hann myndi ekki ná á fundinn.
Sviðsljósið hefur heldur betur verið á Nate Diaz á undanförnum mánuðum og má sjá hann í alls konar viðtölum og myndatökum.