UFC 250 fer fram í kvöld í Las Vegas. Hér má sjá síðustu Embedded þættina fyrir bardagakvöldið.
Aðalbardagi kvöldsins verður á milli Amanda Nunes og Felicia Spencer um fjaðurvigtartitil kvenna.
Í 4. þætti fáum við að sjá bakvið tjöldin á fjölmiðladeginum en hann er með öðruvísi hætti núna eftir kórónuveiruna þar sem allt er gert í gegnum fjarskiptabúnað. Cody Garbrandt hittir lýsendur kvöldsins, Daniel Cormier og Jon Anik, og fer yfir bardaga hans um helgina.
Í 5. þætti fáum við að sjá bakvið tjöldin í niðurskurðinum og vigtunina fyrir bardagana.