UFC ætlaði að halda bardagakvöld í Filippseyjum þann 15. október. Eftir að aðalbardaginn datt út ákvað UFC að hætta við bardagakvöldið.
B.J. Penn og Ricardo Lamas áttu að mætast í aðalbardaga kvöldsins á UFC bardagakvöldinu í Manila. Penn meiddist hins vegar á rifbeini á dögunum og getur ekki barist. Aðalbardaginn féll því niður aðeins 11 dögum fyrir bardagakvöldið og gat UFC ekki fengið stórt nafn í staðinn.
Bardagakvöldið var fremur lélegt til að byrja með, fá stór nöfn á bardagakvöldinu og dræm miðasala. UFC mat það sem svo að bardagakvöldið væri ekki boðlegt eftir að Penn datt út og felldi það niður. Allir bardagarnir verða settir á önnur bardagakvöld og fá bardagamennirnir greiddar skaðabætur frá UFC.
Einn mest spennandi bardagi kvöldsins var viðureign Kyoji Horiguchi og Ali Bagautinov í fluguvigtinni. Það væri gaman að sjá þann bardaga á UFC bardagakvöldinu í Belfast þann 19. nóvember.