Á síðasta sólarhring hefur UFC staðfest tvo skemmtilega þungavigtarbardaga. Fyrrum þungavigtarmeistarinn Fabricio Werdum er kominn með næsta bardaga.
Fabricio Werdum var rotaður af Stipe Miocic fyrr í maí á UFC 198. Hann mun snúa aftur og mæta Ben Rothwell á UFC 203 í Cleveland. Bardagakvöldið fer fram þann 10. september og mun Stipe Miocic mæta Alistair Overeem í sinni fyrstu titilvörn í aðalbardaga kvöldsins.
Rothwell og Werdum eru báðir að koma til baka eftir tap en samanlagt hafa þeir klárað 49 bardaga.
UFC staðfesti einnig aðalbardagann á UFC bardagakvöldinu í Hamburg í haust. UFC mun heimsækja Hamburg í Þýskalandi þann 3. september og munu þeir Andrei Arlovski og Josh Barnett mætast í aðalbardaga kvöldsins. Það er í raun ótrúlegt að þeir hafi aldrei mæst áður en samanlagt eru þeir með 80 bardaga á milli sín og gríðarlega reynslumiklir.
Þetta er ekki eini bardaginn sem staðfestur hefur verið í Hamburg en Ilir Latifi mætir Ryan Bader sama kvöld.