Saturday, April 20, 2024
HomeErlentÚrslit UFC Fight Night: Volkov vs. Struve

Úrslit UFC Fight Night: Volkov vs. Struve

UFC var með bardagakvöld í Rotterdam í Hollandi fyrr í kvöld þar sem þeir Stefan Struve og Alexander Volkov mættust í aðalbardaga kvöldsins. Hér má sjá úrslit kvöldsins.

Þetta gekk ekki vel fyrir heimamanninn Stefan Struve en hann tapaði eftir tæknilegt rothögg í 3. lotu. Þetta var þriðji sigur Alexander Volkov í röð og verður áhugavert að sjá hvert hann fer eftir þennan bardaga. Hér má sjá öll úrslit kvöldsins.

Aðalhluti bardagakvöldsins:

Þungavigt: Alexander Volkov sigraði Stefan Struve með tæknilegu rothöggi eftir 3:30 í 3. lotu.
Millivigt: Siyar Bahadurzada sigraði Rob Wilkinson með tæknilegu rothöggi eftir 3:10 í 2. lotu.
Bantamvigt kvenna: Marion Reneau sigraði Talita Bernardo með tæknilegu rothöggi eftir 4:54 í 3. lotu.
Veltivigt: Leon Edwards sigraði Bryan Barberena eftir dómaraákvörðun.

UFC Fight Pass upphitunarbardagar:

Veltivigt: Darren Till sigraði Bojan Veličković eftir dómaraákvörðun.
Léttvigt: Mairbek Taisumov sigraði Felipe Silva með rothöggi eftir 1:24 í 1. lotu.
Hentivigt (159 pund:) Michel Prazeres sigraði Mads Burnell með uppgjafartaki (north-south choke) eftir 1:26 í 3. lotu.
Léttvigt: Rustam Khabilov sigraði Desmond Green eftir dómaraákvörðun.
Léttþungavigt: Aleksandar Rakić sigraði Francimar Barroso eftir dómaraákvörðun.
Fjaðurvigt: Zabit Magomedsharipov sigraði Mike Santiago með uppgjafartaki (rear-naked choke) eftir 4:22 í 2. lotu.
Léttþungavigt: Abdul-Kerim Edilov sigraði Bojan Mihajlović með tæknilegu rothöggi eftir 2:32 í 2. lotu.
Léttvigt: Thibault Gouti sigraði Andrew Holbrook með tæknilegu rothögg eftir 4:28 í 1. lotu.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular