spot_img
Sunday, December 22, 2024
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeForsíðaValgerður með flottan sigur í Noregi

Valgerður með flottan sigur í Noregi

Valgerður Guðsteinsdóttir vann sinn þriðja atvinnubardaga í hnefaleikum í gær. Valgerður sigraði Dominika Novotny eftir dómaraákvörðun.

Bardaginn fór fram í Noregi á Oslofjord Fight Night en í aðalbardaga kvöldsins mættust þær Cecilia Brækhus og Mikaela Lauren. Hin norska Brækhus er afar vinsæl í heimalandinu en þetta er í annað sinn sem Valgerður berst á sama kvöldi og Brækhus.

Þetta var fyrsti atvinnubardagi Dominika Novotny í hnefaleikum en hún hafði aftur á móti reynslu úr sparkboxi. Fyrsta lotan var svakaleg þar sem Valgerði tókst að slá Novotny niður. Novotny komst betur inn í bardagann í 2. lotu en Valgerður var að lenda fleiri höggum út bardagann. Þær skiptust á þungum höggum út loturnar fjórar en Valgerður stóð uppi sem sigurvegari eftir frábæra frammistöðu. Valgerði var vel fagnað þegar úrslit bardagans voru kunngjörð.

Valgerður er núna 3-0 sem atvinnumaður og heldur áfram að klífa upp metorðastigann í boxinu. Bardagann má sjá á Facebook síðu Hnefaleikastöðvarinnar hér að neðan.

spot_img
spot_img
spot_img
Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Most Popular