Thursday, March 28, 2024
HomeForsíðaValgerður með öruggan sigur í Noregi

Valgerður með öruggan sigur í Noregi

Valgerður Guðsteinsdóttir var rétt í þessu að vinna sinn annan atvinnubardaga í hnefaleikum. Valgerður vann allar loturnar og var sigurinn í raun aldrei í hættu.

Bardaginn fór fram á stóru boxkvöldi í Noregi og var Valgerður í 2. bardaga kvöldsins. Valgerður mætti Marianna Gulyas frá Ungverjalandi en þetta var 39. atvinnubardagi Gulyas.

Valgerður stjórnaði bardaganum allan tímann og kýldi Gulyas niður í 1. lotu. Dómararnir voru ekki í nokkrum vafa hver hefði unnið bardagann og var niðurstaðan 40-35 Valgerði í vil.

Þetta er virkilega vel gert hjá Valgerði enda var hún að keppa við mun reyndari andstæðing. Þetta gæti reynst góður stökkpallur fyrir hana enda var þetta stærsti viðburður í sögu kvennabox á Norðurlöndunum. Valgerður er núna 2-0 sem atvinnumaður og verður gaman að fylgjast með hennar næstu skrefum.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular