Tveir Íslendingar frá VBC keppa í Muay Thai á morgun, laugardag, í Svíþjóð. Hægt verður að horfa á bardagana beint og byrja þeir kl. 12 á laugardaginn.
Þeir Hróbjartur Trausti Árnason og Þorgils Eiður Einarsson stíga í hringinn á laugardaginn. Þetta verður fyrsti Muay Thai bardaig Hróbjarts en Þorgils er að keppa sinn annan bardaga í Muay Thai. Báðir bardagarnir fara fram undir C-class regluverki.
Bardögunum verður streymt í beinni á Instagram síðu VBC. Upphaflega áttu tveir aðrir keppendur frá VBC að keppa á mótinu en.. þurftu að draga sig úr keppni.