Skömmu eftir að klukkurnar hringdu inn jólin tilkynnti UFC spennandi bardaga milli Anderson Silva og Michael Bisping. Bardaginn verður aðalbardaginn á UFC Fight Night 83 í London þann 27. febrúar.
Upphaflega átti Michael Bisping að mæta Gegard Mousasi þetta kvöld en nú hefur Anderson Silva komið í stað Mousasi. Mousasi er þó ekki meiddur og vonast eftir að fá annan andstæðing þetta kvöld.
Anderson Silva er að afplána eins árs keppnisbann um þessar mundir eftir að hafa fallið á lyfjaprófi fyrr á árinu. Silva féll á lyfjaprófi í aðdraganda bardaga hans gegn Nick Diaz fyrr á árinu en banninu lýkur 31. janúar 2016.
Þetta verður 20. bardagi hins fertuga Silva í UFC og 25. bardagi Bisping í UFC. Það er því óhætt að segja að bardaginn sé ansi bitastæður fyrir bardagakvöldið í London sem verður sýnt frítt á Fight Pass rás UFC. Uppselt var á viðburðinn aðeins hálftíma eftir að miðasalan hófst.