Friday, April 19, 2024
HomeForsíðaAron Daði gráðaður í svart belti

Aron Daði gráðaður í svart belti

Aron Daði Bjarnason var um helgina gráðaður í svart belti í brasilísku jiu-jitsu. Aron er 16. Íslendingurinn sem fær svart belti í BJJ.

Aron Daði Bjarnason var gráðaður í svart belti af Martin Jansson og Alexander Wennergren en Aron er búsettur í Svíþjóð og æfir hjá Lund Grapplings Academy. Aron byrjaði í júdó fyrir áratug síðan og í BJJ á svipuðum tíma hjá Fenri á Akureyri. Hann flutti síðan til Reykjavíkur þar sem hann æfði í Mjölni en hefur undanfarin tvö ár æft í Svíþjóð þar sem hann er í námi.

Aron er 16. Íslendingurinn sem fær svart belti í brasilísku jiu-jitsu. Aðrir sem hafa hlotið þann heiður eru þeir Haraldur Þorsteinsson, Gunnar Nelson, Axel Kristinsson, Bjarni Baldursson, Sighvatur Magnús Helgason, Þráinn Kolbeinsson, Arnar Freyr Vigfússon, Kári Gunnarsson, Ingþór Örn Valdimarsson, Jóhann Eyvindsson, Daði Steinn Brynjarsson, Ómar Yamak, Halldór Logi Valsson, Birkir Freyr Helgason og Jósep Valur Guðlaugsson.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular