Eins og við greindum frá seint í gærkvöldi hefur Jon Jones fengið 15 mánaða bann. Nokkrir bardagamenn tjáðu sig um bannið og eiga erfitt með að skilja lengd bannsins.
Jon Jones hefði átt að fá fjögurra ára bann frá USADA eftir að hann féll á lyfjaprófi í annað sinn í júlí í fyrra. Þess í stað fær hann aðeins 15 mánaða bann og verður klár í slaginn 28. október. Bann Jones var stytt töluvert þar sem hann uppljóstraði um aðra bardagamenn sem hafa verið að nota frammistöðubætandi efni.
Jones féll á lyfjaprófi sem tekið var daginn fyrir bardaga hans gegn Daniel Cormier á UFC 214. Jones rotaði Cormier en bardaginn var síðar dæmdur ógildur eftir að Jones féll á lyfjaprófinu. Cormier átti erfitt með að skilja 15 mánaða bannið og sagði USADA að hætta að heimsækja sig snemma um morguninn til að lyfjaprófa sig.
„USADA getur ekki komið lengur heim til mín kl. 6 um morguninn. Til hvers? Þeir hafa bankað upp á 15 sinnum, það er alveg nóg. USADA, þið þurfið ekki að koma heim til mín aftur. Þið þurfið þess ekki, ég mun ekki falla á lyfjaprófi, ég mun ekki gera einhver mistök. 70 sinnum hef ég verið lyfjaprófaður síðan ég byrjaði að glíma á alþjóðlegum vettvangi og ég hef aldrei gert mistök. Þetta er ekki það erfitt. Það að ég þurfi að sitja hér og fara yfir þetta aftur sýnir að þessir gæjar eru fáranlegir,“ sagði Daniel Cormier örlítið pirraður í UFC Tonight þættinum í gærkvöldi.
Following USADA’s official ruling on Jon Jones, @dc_mma speaks on the possibility of DC vs Jones 3. pic.twitter.com/MVQSOY83dg
— FOX Sports: UFC (@UFCONFOX) September 20, 2018
Fleiri bardagamenn eru ekki sáttir með 15 mánaða bannið og tjáðu sig á Twitter.
Khabib Nurmagomedov
Now I understand #usada is n.1 bullshit people.
To much politics.— khabib nurmagomedov (@TeamKhabib) September 20, 2018
Luke Rockhold
@usantidoping you can go home now.
— Luke Rockhold (@LukeRockhold) September 20, 2018
Curtis Blaydes
No shade to JJ but no one is surprised by this arbitrary decision , USADA is steadily losing respect in the fight community to the point of questioning why they even exist ? https://t.co/AhVmwBvBEr
— Curtis Blaydes (@RazorBlaydes265) September 20, 2018
Arjen Singh
They’re all on steroids?
How do you deter a repeat drug user? Dont test him when suspended. Dont give him the 4yr or 2yr suspensions. Instead gift him a 15month deal expiring a week before one of the biggest shows in #NewYork #MoneyTalks @ufc @usantidoping @UFC_CA @dc_mma https://t.co/FXlZhqVLQs— Arjan Singh Bhullar (@TheOneASB) September 20, 2018
Tom Lawlor
You ever hear people say “MMA is fake” or “UFC is fixed”? This Jon Jones shit is what they mean, it’s not the outcomes but the idea of “sport” itself that is fixed. Money rules all. What a fucking joke
— “Filthy” Tom Lawlor (@FilthyTomLawlor) September 19, 2018