Þeir Birgir Örn Tómasson og Bjarki Pétursson keppa á Shinobi 10 bardagakvöldinu í Liverpool í kvöld. Hægt verður að horfa á bardagana í beinni í dag.
Ísfirðingurinn Bjarki Pétursson keppir sinn fyrsta áhugamannabardaga í MMA í kvöld. Hann mætir Joey Dakin og er í fyrsta bardaga kvöldsins. Bardagakvöldið byrjar kl 17:30 og berst Bjarki þá.
Birgir Örn Tómasson mætir Anthony O’Connor í sínum fyrsta atvinnubardaga í kvöld. Hann er á síðasta hluta kvöldsins, svo kallað „pro card“ og hefst það kl 22. Birgir Örn er í fyrsta bardaganum á þeim hluta kvöldsins og ef allar tímasetningar standast mun Birgir berjast kl 22 í kvöld.
Hægt er að kaupa löglegt streymi á bardagana hér og kostar tæp sjö pund (959 kr). Einnig verða bardagarnir sýndir á Drukkstofu Óðins í nýja Mjölnishúsnæðinu og á Sportbarnum Skúrinn á Ísafirði.