Blaðamannafundurinn fyrir bardaga Conor McGregor og Khabib Nurmagomedov fer fram í New York í kvöld. Blaðamannafundurinn verður í beinni útsendingu á Youtube hér að neðan.
Þeir Conor McGregor og Khabib Nurmagomedov mætast á UFC 229 þann 6. október. Nú þegar rúmar tvær vikur eru í bardagann hafa kapparnir ekki enn mæst augliti til auglits en það verður breyting á því í kvöld. Aðdáendur geta átt von á fjöri í kvöld en blaðamannafundurinn hefst kl. 21 á íslenskum tíma.
Blaðamannafundurinn í kvöld fer fram í New York rétt eins og rútuárásin fræga í apríl.