Fimm boxarar frá HR/Mjölni keppa á Grænlandi í kvöld. Bardagarnir verða sýndir beint í grænlenska ríkissjónvarpinu.
Þau Heba María Ægisdóttir, Venet Banushi, Garpur Fletcher, Elmar Gauti Halldórsson, Lisa Billing og Sigurjón Vikar Rúnarsson héldu til Grænlands á fimmtudaginn til að keppa á boxmótinu í kvöld ásamt þjálfurum. Því miður þá datt andstæðingur Elmars út og fær hann því ekki að keppa í kvöld.
Viðburðurinn er ágætlega stór en búist er við um 1000 áhorfendum í kvöld og þá er þetta sýnt í beinni útsendingu. Samkvæmt mótshöldurum verður hægt að horfa á útsendinguna á netinu hér að neðan þegar keppni hefst. Keppnin hefst kl. 19 í Grænlandi eða kl. 22 á íslenskum tíma.
Hægt er að fylgjast með á bakvið tjöldin hjá keppnishópnum á Snapchat-i Mjölnis (mjolnirmma).
https://www.youtube.com/watch?v=7i6hsrHtq7w