Ekkert hefur heyrst frá Brandon Thatch síðan Gunnar Nelson sigraði hann á UFC 189 í júlí. Nú er hann kominn með næsta bardaga en hann mætir Siyar Bahadurzada í febrúar.
Bardaginn fer fram á UFC Fight Night 82 í Pittsburgh í Bandaríkjunum þann 21. febrúar á næsta ári. Thatch hefur tapað tveimur bardögum í röð (gegn Ben Henderson og Gunnari Nelson) og þarf nauðsynlega á sigri að halda í febrúar.
Siyar Bahadurzada þarf einnig nauðsynlega á sigri að halda en hann hefur tapað sínum síðustu tveimur bardögum í UFC líkt og Thatch. Bahadurzada hefur átt við mikil meiðsli að stríða og ekkert barist síðan hann tapaði fyrir John Howard í desember 2013.
Ekki er vitað hver aðalbardagi kvöldsins verður en kvöldið er hlaðið af spennandi bardögum. Meðal bardaga á kvöldinu má sjá John Lineker gegn Cody Garbrandt, Alex Garcia gegn Sean Strickland og líklegast Bethe Correia gegn Jessica Eye.