Næsta titilvörn millivigtarmeistarans Chris Weidman verður gegn Luke Rockhold eins og fastlega var búist við. Ekki er vitað hvenær bardaginn fer fram en bardaginn gæti farið fram á fyrsta UFC viðburðinum í New York.
Dana White, forseti UFC, staðfesti fyrr í vikunni að Rockhold fái næsta titilbardaga. UFC hefur ekki opinberað hvar eða hvenær bardaginn fer fram og mun líklegast bíða eftir fréttum af lögleiðingu MMA í New York áður en það verður ákveðið.
New York ríki er eina ríki Bandaríkjanna þar sem MMA hefur ekki enn verið lögleitt. Það gæti breyst á næstu tveimur vikum og ef það gerist mun UFC halda risa viðburð í Madison Square Garden í New York.
UFC 194 fer fram 5. desember og gæti það verið fyrsta bardagakvöld UFC í New York. New York búinn Chris Weidman verður þá í aðalbardaga kvöldsins gegn Luke Rockhold en hann varði nýverið millivigtartitil sinn gegn Vitor Belfort.
Löggjafartímabilinu í New York ríki lýkur 17. júní og ef lagafrumvarp um lögleiðingu MMA verði ekki samþykkt fyrir þann tíma verður ekkert MMA í New York á þessu ári. Það má því vænta þess að tímasetning og staðsetning bardagans komi ekki í ljós fyrr en seint í júní.