Þriðji þátturinn af UFC 194 Embedded seríunni er kominn á netið. Í þættinum segist Conor McGregor vera með njósnara í herbúðum Jose Aldo.
„Ég hef mína njósnara í herbúðum hans [Aldo] svo ég sé allt sem hann gerir,“ sagði Conor McGregor í nýjasta UFC 194 Embedded þættinum.
Jose Aldo hefur áður sagt að það sé „rotta í sínum herbúðum sem kjaftar frá“. Á blaðamannafundi í Brasilíu á dögunum sagðist Aldo hafa dreift ósönnum orðrómi um að hann ætti við meiðsli að stríða til að reyna að finna „rottuna“.
„Stundum segist ég vera meiddur svo menn fari og tali um meiðslin. Þannig finnum við hver rottan er,” sagði Aldo á blaðamannafundinum í nóvember.
Þáttinn má sjá hér fyrir neðan en ummæli hans birtast eftir 6:40.