Samkvæmt áreiðanlegum heimildum MMA Frétta er Cole Miller meiddur og getur ekki barist við Conor McGregor í Dublin í júlí.
Í hans stað kemur Brasilíumaðurinn Diego Brandao en þeir þóttu líklegir til að mætast áður en McGregor meiddist í hnénu í ágúst í fyrra. Diego Brandao barðist síðast gegn Dustin Poirier þar sem hann var rotaður en fram að því hafði hann sigrað þrjá bardaga í röð. Brandao sýndi undarlega hegðun í aðdraganda bardagans en samkvæmt Poirier hótaði Brandao að stinga hann í vigtuninni.
Brandao er í 15. sæti á styrkleikalista UFC og sigraði 14. seríu The Ultimate Fighter. Hann æfir hjá Greg Jackson í einum virtasta bardagaklúbbi heims, Jackson’s Mixed Martial Arts í Nýju-Mexíkó. Það er því nokkuð ljóst að Brandao er afar spennandi andstæðingur fyrir McGregor og verður aðalbardaginn í Dublin frábær skemmtun.
Conor McGregor barðist síðast þann 17. ágúst í Boston þar sem hann sigraði Max Holloway örugglega eftir dómaraákvörðun. Á sama kvöldi sigraði Diego Brandao Daniel Pineda eftir dómaraákvörðun. Eftir bardagana talaði John Kavanagh, þjálfari McGregor, að hann væri til í að sjá sinn mann og Brandao berjast. Diego Brandao tók áskoruninni en eins og hefur áður komið fram meiddist McGregor. Brandao var ekki par sáttur við það og sagði þetta á Twitter.
Hvorugir bardagamannanna eru þekktir fyrir að sitja á skoðunum sínum og ættu viðtölin fyrir bardagana að verða ansi skemmtileg.
Nýr andstæðingur, sömu úrslit 😉