Conor McGregor birti á dögunum langan póst á opinberri Facebook síðu sinni. Í póstinu talaði hann um Floyd Mayweather, verðlaun síðasta árs og sinn næsta bardaga.
Conor McGregor byrjaði póstinn á að þakka Rolling Stone tímaritinu fyrir að velja sig sem eitt af kyntáknum síðasta árs. Þá þakkaði hann einnig þeim fjölmörgu fjölmiðlum sem kusu hann bardagamann síðasta árs.
Þá svaraði hann ummælum Floyd Mayweather en boxarinn vill meina að kynþáttur hafi mikið að gera með það ólíka umtal sem kapparnir fá. Mayweather vill meina að McGregor sé hrósað fyrir skítkast sitt á meðan Mayweather er sagður hrokafullur.
McGregor sagði Mayweather að blanda ekki kynþætti í þetta og skaut einnig á boxarann umtalaða.
Það skemmtilegasta við póstinn hans eru ummæli McGregor um sinn næsta bardaga. Hann er öryggið uppmálað eins og honum einum er líkt og sagði þetta bara vera enn einn auðvelda bardaginn.
McGregor mætir Rafael dos Anjos á UFC 197 þann 5. mars um léttvigtarbeltið. McGregor er ríkjandi fjaðurvigtarmeistari UFC og getur orðið sá fyrsti í sögu UFC til að halda tveimur beltum á sama tíma.
1. Rolling Stone, thank you for putting me as one of your top 25 sex symbols of 2015! My Mother will be delighted and…