Dana White, forseti UFC, segir að Conor McGregor muni berjast aftur í UFC eftir boxbardagann við Floyd Mayweather. Að sögn Dana vill Conor mæta Rússanum Khabib Nurmagomedov og það á hans heimavelli.
Conor McGregor er sem stendur að undirbúa sig undir boxbardaga við Floyd Mayweather. Bardaginn fer fram þann 26. ágúst og mun Conor mokgræða á bardaganum. Margir reikna með að Conor muni ekki snúa aftur í UFC eftir bardagann en Dana White segir svo ekki vera.
„Conor sagði; ‘Ég vil fá Khabib í Rússlandi’. Er hann ekki f**king frábær? Hann er æðislegur. Conor McGregor er f**king einhyrningur, það er enginn eins og hann. Hann er að fara að boxa við Floyd Mayweather og er að tala um að mæta Khabib í Rússlandi eftir það,“ sagði Dana White við MMA Junkie.
.@TheNotoriousMMA vs. @TeamKhabib? In Russia? That’s the UFC champ’s wish after Mayweather, says @danawhite. More: https://t.co/1N2pdV3c8I pic.twitter.com/UoGkaITk3q
— MMAjunkie (@MMAjunkie) June 29, 2017
Dana sagði einnig að þeir Tony Ferguson og Khabib Nurmagomedov þyrftu fyrst að berjast. Þeir áttu að berjast á UFC 209 í mars en bardagann féll niður rúmum sólarhringi fyrir bardagann þar sem Khabib átti í erfiðleikum með niðurskurðinn og var sendur á spítala.
UFC hefur lengi reynt að halda viðburð í Rússlandi en án árangurs. Það yrði stór viðburður enda bardagaíþróttir feykivinsælar í Rússlandi. Khabib Nurmagomedov er gríðarlega vinsæll í heimalandinu og væri líklegast í aðalbardaganum ef UFC myndi halda bardagakvöld þar.