Dong Hyun Kim, sem átti að mæta Gunnari Nelson nú um helgina, er kominn með annan bardaga. Kim mætir Tarec Saffiedine á UFC 207 í lok desember.
Bardagi Gunnars og Dong Hyun Kim átti að vera aðalbardaginn á UFC bardagakvöldinu í Belfast nú um helgina. Því miður meiddist Gunnar og gat hann því ekki barist eins og til stóð. Uriah Hall og Gegard Mousasi eru þess í stað í aðalbardaga kvöldsins og stóð aldrei til að finna nýjan andstæðing fyrir Kim í Belfast.
Vonir stóðu til að bardagi Gunnars og Kim myndi aftur verða settur saman á næsta ári en nú er ljóst að Kim ætlar ekki bara að bíða. UFC 207 fer fram þann 30. desember þar sem Ronda Rousey mætir Amöndu Nunes í aðalbardaga kvöldsins.
Tarec Saffiedine átti að mæta Matt Brown sama kvöld en Brown var færður á UFC 206 til að mæta Donald Cerrone. Kúrekinn Cerrone átti að mæta Kelvin Gastelum á UFC 205 um nýliðna helgi en Gastelum var langt frá því að ná vigt og því gat bardaginn ekki farið fram.
Dong Hyun Kim hefur ekkert barist síðan í nóvember 2015. Kim átti að mæta Neil Magny á UFC 202 en meiddist og gat því ekki keppt. Bardagi hans gegn Gunnari féll auðvitað niður svo hann er eflaust ólmur í að fá að berjast aftur sem fyrst.
Bardaginn hefur ekki verið staðfestur af UFC en sænska vefsíðan MMA Nytt hefur heimildir fyrir þessu. Þá hefur MMA Kings einnig greint frá þessu
BREAKING: Dong Hyun Kim (@fighterdhk) replaces Matt Brown; faces Tarec Saffiedine (@tarecfighter) at UFC 207 in Vegas (per @mmanytt) #UFC pic.twitter.com/8dQMCMTBM5
— The MMA Kings (@mma_kings) November 16, 2016